Bréfagögn og umslög
Fyrirtæki sem vilja byggja upp góða ímynd senda frá sér falleg og stílhrein bréfagögn. Með bréfagögnum er átt við bréfsefni, reikninga, greiðsluseðla, kvittanir, blokkir og minnisblokkir. Við afgreiðum bréfsefni, reikninga og greiðsluseðla í snyrtilegum öskjum
Umslög
Falleg umslög vekja athygli og kynna fyrirtæki á jákvæðan hátt. Þegar umslög opnast á langhlið tölum við um umslög en poka ef þau opnast á skammhlið.
Algengustu stærðir/gerðir
C6 114×162 mm með og án glugga
E65 110×220 mm með og án glugga
M65 112×220 mm með og án glugga
C65 114×229 mm með og án glugga
C-5 162×229 mm með og án glugga
C-4 229×324 mm með og án glugga
B-4 255×354 mm án glugga [bref12]
Nafnspjöld og kveðjuspjöld
Við prentum nafnspjöld í öllum litum og notum ýmsar gerðir pappírs. Ef afhendingartími er stuttur prentum við nafnspjöldin stafrænt.
Fyrir þá sem vilja leggja meira í nafnspjöldin getum við hleypt þeim upp með þrykkingu eða notað duft við upphleypingu, sem gefur glansáferð.
Algengasta stærð nafnspjalda er 55x85mm en kveðjuspjöld eru oft stærri.